Polaroid Pinscher


27. september 2009 - Klúbbasýning
Við Teckla skelltum okkur á Svissneksu Schnauzer- Pinscher klúbbasýninguna í gær og það gekk bara ágætlega hjá okkur vinkonunum. Teckla fékk EX-1 í opna flokkinum og sitt annað svissneska meistarastig og er því hálfnuð í meistarann. Hún fékk einnig "ISPU Clubsiegeranwartschaft" eða "ISPU Club Winners Qualifying" hvernig svo sem maður ætti að þýða það yfir á okkar ylhýra :o)
Veðrið var algjörlega geggjað, það er alls ekki leiðinlegt að baða sig í sól og yfir 20 stiga hita svona í lok september. Svo hundarnir fengu að njóta góða veðursins saman utan sýningarhringsins á meðan eigendurnir sötruðu saman bjór. Lífið er ljúft :o)
Nokkrar myndir frá sýningunni er í albúminu góða.

 

7. júlí 2009 - AI
Frá og með deginum í dag erum við meðlimir að 'Augeninitiative' (AI), hópi fólks í Evrópu sem hefur áhuga á að fylgjast vel með augnvandamálum í Pinscher, með því að augnskoða hundana sína regulega og vilja lækka tíðni augnsjúkdóma í tegundinni.

 

3. júlí 2009 - Augnskoðun
Við erum búin að bralla ýmislegt það sem af er sumri. Við fengum bæði vinafólk og svo fjölskyldu í heimsókn til Basel frá Íslandi og Teckla var alveg í essinu sínu yfir að hafa litla krakka heima til að leika við allan liðlangan daginn. Það eru nokkrar nýjar myndir af Tecklu með mannahvolpunum við leik í albúminu okkar.

Einnig er gaman að segja frá því að í dag fór Teckla í augnskoðun og greindist frí frá öllum augnsjúkdómum og við erum svo sannarlega ánægð með það.

 

23. maí 2009 - Dilute DD
Við vorum rétt í þessu að fá niðurstöður úr DNA testi Tecklu vegna útþynntalitsins og kom í ljós að hún er DD þ.e.a.s. ekki beri fyrir bláum og fawn lit.

 

16. maí 2009 - Sýning
Um helgina var stór sýning í St. Gallen í Sviss og það gekk heldur betur vel hjá okkur. Þetta var í fyrsta sinn sem Teckla átti möguleika á að ná í "fullorðins" meistarastig og hún gerði gott betur og varð Besti Hundur Tegundar og fékk bæði svissneskt- og alþjóðlegt meistarastig. Við erum svo sannarlega monntin með litlu snúlluna okkar! :)

Mig langar að þakka Leenu enn og aftur fyrir þessa yndislegu tík. Sömuleiðis langar mig að þakka Bianca Miniature Pinscher ræktanda - van Majori's Donk fyrir að gefa góð ráð og hjálp fyrir grúppu úrslitin :o)

 

5. maí 2009 - Ræktunarnafn
Húrra! Við vorum að fá staðfestingu hjá FCI um að drauma ræktunarnafnið okkar var samþykkt! Bjóðið Múspells Pinscher velkomin í heiminn :)

 

3. maí 2009 - Niðurstöður mjaðmamyndunnar
Við vorum að fá þær frábæru fréttir um niðurstöður úr mjaðmamyndatöku Tecklu að hún er frí frá mjaðmalosi. Þetta eru svo sannarlega góðar fréttir fyrir okkur! :)

 

16. apríl 2009 - Nýtt Pinscher Spjall
Við vorum að byggja upp nýtt Pinscher spjall fyrir alla Pinscher unnendur í Evrópu. Endilega kíkið við ef þið hafið áhuga á að fylgjast með Pinscher hundum Evrópu.

http://www.pinscherforum.com

 

28. mars 2009 - Ankörung
Í dag skelltum við Teckla okkur til Lyssach þar sem fór fram ankörung, sem er þýski ræktunardómurinn. Ég hafði aldrei séð hvernig ankörung færi fram og fann mjög takmarkað efni um það á netinu, svo ég vissi lítið hvað beið mín og náði því að byggja upp ansi svæsin stresspakka fyrir þetta :) En að sjálfsögðu var ekkert að óttast og Teckla stóð sig eins og hetja í dómnum. Ég fékk mjög ítarlegan dóm um byggingu og geðslag, og spannar dómurinn 2 A4 blöð, með ítarlegum málum af hæð, lengd, lengd höfuðs, lengd baks, og brjóstummál. Einnig var teiknaður hundur á blaðinu og þar krotaði dómarinn inn ýmis tákn, sem betur fer var það mest allt + sem þykir best. Þetta var mjög áhugavert fyrir mig að sjá, þó það var svosem fátt sem kom á óvart um hvað þau höfðu að segja. En þau voru mjög hrifin af geðslaginu hennar sem ég var ánægð að heyra og þau sögðu mér að halda vel í geðslagið, sem er einmitt ætlunin. Dómararnir benntu mér á hennar sterku hliðar og veiku punkta og gáfu mér nokkra punkta um það hvað ég ætti að hafa í huga þegar ég væri að velta rökkum fyrir mér á hana.

En niðurstaðan var sem sagt sú að daman stóðst ankörungið og er með gilt ankörungsplagg sem gildir til 9 ára aldurs.

Eftir ankörungið skelltum við okkur aðeins til Bern og það var gaman að sjá að birnirnir sem búa í bjarnargryfju Bern voru vaknaðir af vetrarblundinum og Tecklu fannst mjög gaman að skoða þessu stóru dýr – allavegana svona í fjarska :) Nokkrar myndir af því eru komnar í myndaalbúmið.

 

22. febrúar 2009 - Sýning
Í gær fórum við Teckla á fyrstu Svissnesku sýninguna okkar. Hún var haldin í Fribourg, sem er í franska hlutanum í Sviss. Tecklu gekk alveg þokkanlega, dómarinn sagði að hún væri almenn ágætis tík, var hrifin af höfðinu hennar, feldi, topplínu og hreyfingum, en sagði að hún þyrfti betra brjóst. Ég er sammála öllu sem dómarinn sagði. Frú A. Galofre Moragas gaf okkur Very Good og annað sæti í unliðaflokki.

   
  | © Allur réttur áskilinn, afritun af síðunni er óheimil án leyfi eiganda | Vefhönnun: Begga |